Erlent

Dauðsföll í Írak aldrei fleiri í einum mánuði

Eitt af mörgum ofbeldisverkum í Írak á undanförnum mánuðum.
Eitt af mörgum ofbeldisverkum í Írak á undanförnum mánuðum. MYND/AP

Dauðsföll í Írak hafa ekki verið fleiri en í nýliðnum októbermánuði síðan Bandaríkjamenn réðust inn í Írak árið 2003 og rösklega 2 milljónir manna hafa flúið heimili sín að sögn Sameinuðu þjóðanna. Alls létust 3.709 manns í október, en fyrra fjöldamet var frá því í júlí þegar 3.590 manns féllu í átökum í landinu.

Skýrsla Sameinuðu þjóðanna byggir á tölum frá heilbrigðisráðuneytinu íraska. Flestir láta lífið í Bagdad, eða nærri 5.000 af þeim 7.054 mönnum sem létust í september og október. Flest báru líkin þess merki að fólkið hefði verið pyntað og skotið til bana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×