Erlent

Leikstjórinn Altman allur

Robert Altman, þá loksins að hann fékk Óskarsstyttu. Eftir að hafa verið tilnefndur 5 sinnum sem besti leikstjórinn fékk hann heiðursverðlaun á hátíðinni í ár.
Robert Altman, þá loksins að hann fékk Óskarsstyttu. Eftir að hafa verið tilnefndur 5 sinnum sem besti leikstjórinn fékk hann heiðursverðlaun á hátíðinni í ár. MYND/AP

Leikstjórinn Robert Altman, húmoristinn kaldranalegi á bak við þættina M-A-S-H, Nashville auk fjölda kvikmynda, lést á mánudag, áttatíu og eins árs að aldri. Altman var fimm sinnum tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leikstjórn, síðast árið 2001 fyrir myndina Gosford Park. Honum hlotnuðust heiðursverðlaun á síðustu Óskarsverðlaunahátíð.

Altman þótti mistækur í leikstjórn sinni, inn á milli stórmynda leikstýrði hann myndum sem hvorki hlutu náð fyrir augum áhorfenda eða gagnrýnenda. Síðast gerði hann stórmyndina Gosford Park sem tilnefnd var til 6 Óskarsverðlauna árið 2001 en þá hafði hann slegið nokkur feilhögg í röð: Sætabrauðsdrengurinn (The Gingerbread Man) árið 1998, Cookie's Fortune árið 1999 og Dr. T & konurnar (Dr T & the women) árið 2000.

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×