Erlent

Starfsmönnum Rauða krossins á Gaza sleppt úr haldi

Annar Ítalanna sem rænt var á Gaza.
Annar Ítalanna sem rænt var á Gaza. MYND/AP

Tveimur ítölskum starfsmönnum Rauða krossins sem rænt var á Gaza-svæðinu í gærdag var sleppt ómeiddum úr haldi mannræningjanna rétt eftir miðnætti. Samtökin tilkynntu í framhaldi af því að öllum verkefnum Alþjóða Rauða krossins á svæðinu yrði hætt þar til annað kæmi í ljós.

Þetta er gert vegna fjölda mannrána á erlendum ríkisborgurum, þar á meðal mörgum hjálparstarfsmönnum, undanfarna daga. Ekki er enn vitað hver ber ábyrgð á ráninu en samtök á vegum Hamas segjast hafa samið við mannræningjana um lausn mannanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×