Erlent

Neyðarfundur um morð á líbönskum ráðherra

Mynd af hinum myrta Pierre Gemayel var í heiðurssessi. Lengst til vinstri situr Amin Gemayel, fyrrverandi forseti, sem er faðir hins myrta. Í miðjunni er Fouad Siniora, forsætisráðherra.
Mynd af hinum myrta Pierre Gemayel var í heiðurssessi. Lengst til vinstri situr Amin Gemayel, fyrrverandi forseti, sem er faðir hins myrta. Í miðjunni er Fouad Siniora, forsætisráðherra. MYND/AP

Stjórnmálamenn úr 14 flokkum, bæði múslimar og kristnir og hvort tveggja andstæðingar og áhangendur Sýrlandsstjórnar hittust á lokuðum neyðarfundi í Beirút í Líbanon í gær, til þess að ræða morðið á iðnaðarráðherra Líbanons og einum helsta leiðtoga kristinna maróníta í landinu.

Andstæðingar Sýrlands sökuðu þarlenda stjórnmálamenn um að hafa lagt á ráðin um morðið og fordæmdu það. Margir telja Sýrlendinga hafa staðið að baki morðum á fleiri stjórnmálamönnum sem ekki þýddust stefnu grannveldisins stóra.

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt drög að sérstökum alþjóðlegum dómstól sem mun rétta í morði fyrrum forsætisráðherra Líbanons, Rafik al-Hariri. Þessar aðgerðir af hálfu öryggisráðsins, sem voru lagðar fyrir Kofi Annan í gærkvöldi, þýða að líbanska ríkisstjórnin þarf eingöngu að leggja blessun sína yfir dómstólinn til þess að hann geti hafið störf sín. Líbanskir embættismenn sögðu að þeir gætu einnig hugsað sér að draga þá sem myrtu Pierre Gemayel í gær fyrir þennan dómstól.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×