Erlent

Óttast um 15 námamenn í Póllandi

Aðstandendur bíða í von og óvon fyrir utan námusvæðið til að frétta af aðstandendum sínum.
Aðstandendur bíða í von og óvon fyrir utan námusvæðið til að frétta af aðstandendum sínum. MYND/AP

Átta námamenn eru látnir í námaslysi í Póllandi og vonir um að 15 til viðbótar bjargist á lífi dvína með hverri stund sem líður. Þeir eru fastir á 1000 metra dýpi eftir sprengingu í námunni í gærdag og er súrefni af skornum skammti þar sem loftræstileiðslur skemmdust í sprengingunni. Björgunarmenn reyna nú að ryðja um 500 metra löng göng til að komast til þeirra sem enn eru á lífi.

Talið er að gassprenging hafi orðið í námunni en það hefur ekki verið staðfest. Vitað er að öryggismál voru í ólestri í þessari námu eins og í mörgum öðrum kolanámum í Póllandi en þeim hefur illa verið haldið við eftir fall kommúnismans. 80 námamenn hafa látist í Póllandi síðan árið 2003.

Forsætisráðherra Póllands hefur lýst yfir þjóðarsorg vegna slyssins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×