Erlent

Byssumenn á hraðbátum rændu olíuverkamönnum í Nígeríu

Talið er að nígerískir skæruliðar hafi tekið nokkra olíuiðnaðarmenn sem gísla um borð í skipi á hafi úti í morgun. Vitni segja að mennirnir hafi komið vopnaðir að skipinu á nokkrum bátum og tekið alla sem þar voru í gíslingu. Það er ekki óalgengt að erlendum olíuverkamönnum sé rænt í Nígeríu og lausnargjalds krafist en þeim er yfirleitt sleppt ef lausnargjald er greitt.

Skipið sem mönnunum var rænt af er í eigu ítalsks fyrirtækis og voru flestir skipverjar útlendingar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×