Erlent

Helmingur framhaldsskólanema í verkfall í Danmörku

Liðlega helmingur framhaldsskólanema í Danmörku fer í verkfall í dag, að því er Jótlandspósturinn greinir frá, og víðtæk mótmæli eru skipulögð í Kaupmannahöfn, Óðinsvéum, Árósum og fleiri stórum bæjum í Danmörku. Slagorðaköll og mótmælaspjöld munu setja svip sinn á bæina þegar nemendurnir yfirgefa kennslustofurnar og halda út á göturnar til að mótmæla fjársvelti framhaldsskólanna.

Stjórnmálamenn í öllum flokkum segjast hins vegar ekkert kannast við að "víðtækar sparnaðaraðgerðir" sem nemendur og kennarar kvarta undan. Pelle Dam, varaformaður Félags framhaldsskólanema í Danmörku, segir mikinn baráttuanda í nemendum, þrátt fyrir að ekki líti út fyrir að meiri peningum verði varið til framhaldsskólanna, eftir að Bertel Haarder, menntamálaráðherra, fékk stuðning Sósíaldemókrataflokksins og Róttæka flokksins í síðustu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×