Erlent

Morðsaga Simpsons ekki gefin út

O.J. Simpson við réttarhöldin. Hér mátar hann sams konar hanska og þá sem voru helstu sönnunargögnin.
O.J. Simpson við réttarhöldin. Hér mátar hann sams konar hanska og þá sem voru helstu sönnunargögnin. MYND/AP

Fjölmiðlafyrirtæki Roberts Murdoch hefur hætt við að gefa út umdeilda bók O.J. Simpsons, þar sem hann lýsir því hvernig hann hefði drepið eiginkonu sína, ef hann hefði framið verknaðinn. Viðtalsþáttur með sama nafni og bókin: "Ef ég hefði gert það", verður heldur ekki sýndur.

Murdoch baðst afsökunar á hugmyndinni sem hann kallaði illa úthugsaða. Sjónvarpsstöðvar undir hatti Fox ljósvakamiðla höfðu neitað að sýna viðtalsþáttinn, af þeirri ástæðu að hann væri smekklaus. Simpson var á sínum tíma sýknaður af morðinu á eiginkonu sinni og vin hennar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×