Erlent

Komið upp um hryðjuverkaáætlanir í Þýskalandi

MYND/AP

Þýska rannsóknarlögreglan hefur komið upp um áætlanir um hryðjuverk í flugvél í Þýskalandi í ár. Lögreglan telur að átt hafi að sprengja flugvél í loft upp. Í það minnsta sex manns voru yfirheyrðir af lögreglu vegna rannsóknarinnar á föstudaginn en sleppt á laugardag. Talið er að tveir óþekktir bakhjarlar standi fyrir áætluninni.

Nokkrir af hinum grunuðu komu að máli við mann í sumar, sem hefur sérstakan aðgang að lokuðu flugvallarsvæði. Áætlunin gekk út á að koma sprengiefnum fyrir í farangri en meiri upplýsingar vildi rannsóknarlögreglan ekki gefa upp í bili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×