Erlent

Mikil lækkun á heimsmarkaðsverði á olíu

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hrapað um 4% síðan í gærkvöldi. Tunnan af hráolíu féll í morgun niður fyrir 56 dollara og hefur vísitala kauphalla víða um heim lækkað töluvert sem og gengi bréfa í hinum ýmsu olíu- og orkufyrirtækjum.

Forsvarsmenn fyrirtækjanna segja um tímabundna lækkun að ræða og að nú sé prýðisgott kauptækifæri. Ekki er þó útséð um hvort leiðin liggur upp á við eða áfram niður.

Ástæðan fyrir lækkuninni er skýrsla gasframleiðenda í Bandaríkjunum í gærkvöldi sem gaf til kynna afar sterka lagerstöðu á jarðgasi, sem og að veðurfræðingar búast við tiltölulega mildum vetri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×