Erlent

Tonga kallar eftir aðstoð Ástrala og Nýsjálendinga

Mikil skemmdarverk hafa fylgt mótmælum lýðræðissinnanna.
Mikil skemmdarverk hafa fylgt mótmælum lýðræðissinnanna. MYND/AP
Stjórnvöld á Tonga-eyjum í Kyrrahafi hafa beðið Ástrali og Nýsjálendinga að senda lögreglu og hermenn til landsins til að stilla til friðar í höfuðborginni Nuku'alofa. Átta hafa látist í uppþotum og mótmælum lýðræðissinna í vikunni. Ástralir og Nýsjálendingar munu verða við beiðninni og senda 150 manna lið til eyjanna.

Óeirðirnar hófust í konungsríkinu litla í Suður-Kyrrahafi eftir að þing var rofið og tilkynnt að það kæmi ekki saman fyrr en að ári, rétt áður en til stóð að kjósa um róttækar stjórnarskrárbreytingar í átt til lýðræðis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×