Erlent

Mega sletta SMS-skammstöfunum á prófi

MYND/Vilhelm Gunnarsson

Framhaldsskólanemar á Nýja-Sjálandi mega nú nota SMS-styttingar á prófum, til jafns við fullgilda ensku. Skammstafanir eins og CU (í stað see you) og ROTFL (stendur fyrir Rolling on the floor laughing, sem sagt kútveltist af hlátri) eru nú fullgilt ritmál á prófum. Þannig ætla nýsjálenskir framhaldsskólar að halda í við nútímann, þó að málfarið sé illa séð víðast hvar.

CNN skrifar að skólayfirvöld á Nýja-Sjálandi hvetji nemendur til að nota góða og gilda ensku til að svara spurningum en ef nemendur sýni skilning á viðfangsefninu og svari spurningum efnislega rétt, þá muni prófdómarar ekki draga frá stig fyrir notkun svokallaðs SMS-máls, sem á ensku er kallað "text-speak".




Fleiri fréttir

Sjá meira


×