Erlent

Snjókoma um mitt sumar í Ástralíu

Snjórinn fellur víðar en hér á Íslandi um þessar mundir. Hitt er öllu óvenjulegra að það snjói á suðurhveli jarðar á þessum tíma árs. Þess vegna ráku íbúar í Viktoríu í Ástralíu upp stór augu í morgun þegar þeir þurftu að taka fram rúðusköfurnar um mitt sumar.

Þessi veðrabrigði orsakast af köldum vindstreng beint upp af Suðurskautslandinu sem hélt innreið sína í nótt en endist líklega ekki lengi. Áður en þeir vita af geta þeir aftur farið í sólbað á ströndinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×