Erlent

Átröskunarsjúklingur lést vegna ofáts

MYND/Anton Brink
22ja ára ungversk kona sem þjáðist af búlimíu lést á sjúkrahúsi í Búdapest eftir að hafa etið of stóran skammt af mat. Konan var ekki vannærð eða undir kjörþyngd og virtist í góðu líkamlegu ástandi en kvartaði undan ákaflega sársaukafullum verkjum í maga og kviðvöðvum. Rannsóknir sýndu að magi hennar var svo þaninn að hann hafði ýtt öðrum líffærum úr stað og stöðvað blóðflæði í stórum æðum.

Ungverski læknirinn, dr Endre Gyurkovics lýsir þessum sjaldgæfu en afar alvarlegu afleiðingum af átröskunarsjúkdómnum Bulimia nervosa í nýjasta tölublaði International Journal og Eating Disorders. Hann lýsir því í greininni að skurðlæknar hafi opnað maga hennar og fjarlægt þaðan 11 kíló af mat og drykk en þurftu einnig að fjarlægja hluta af görnum hennar vegna bólgueinkenna.

Skurðaðgerðin heppnaðist vel en konan lést engu að síður 36 tímum eftir aðgerðina vegna mikilla blæðinga. Gyurkovics segir afar mikilvægt að greina og bregðast við átröskunarsjúkdómum á frumstigi, þannig sé mun auðveldara að bregðast við og meðhöndla þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×