Erlent

Forsætisráðherra Fílabeinsstrandarinnar fær aukin völd

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. MYND/AP

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti samhljóða í dag að veita forsætisráðherra Fílabeinsstrandarinnar til þess að hann geti stýrt landinu farsællega til kosninga á næsta ári. Forseti landsins, Laurent Gbagbo, er þar með sviptur nær öllum völdum.

Tillagan sem var samþykkt í dag var endurskrifuð í snarhasti eftir að uppkast sem Frakkar lögðu fram náði ekki fram að ganga í atkvæðagreiðslu í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×