De Beers vill útrýma blóðdemöntum 1. nóvember 2006 17:58 Demantar í Botsvana. Mörg Afríkuríki eiga auðugar demantanámur en því miður fer gróðinn oft í rangar hendur. MYND/Reuters
Demantarisinn De Beers óttast að frumsýning kvikmyndarinnar "Blóðdemanturinn" með Leonardo DiCaprio hafi neikvæð áhrif á gimsteinasölu og hvetur því til áhrifaríkari herferðar gegn svokölluðum átakademöntum eða blóðdemöntum sem uppreisnarmenn og vígahópar í mörgum Afríkuríkjum selja á svörtum markaði til að fjármagna áframhaldandi átök. Kimberly-átakið svonefnda, sem er átak margra stórra demantasala og landa sem eiga demantanámur til að kveða niður ólöglega sölu demanta til vopnakaupa, hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir að halda ekki vatni og vera ekki nógu áhrifaríkt verkfæri í baráttunni. Nýleg skýrsla viðurkennir að Kimberley-átakið hafi dregið mjög úr ólöglegum demantaviðskiptum en bendir um leið á að ekki hafi verið tekist á við alvarlega galla og vankanta í herferðinni. Rannsóknir óháðra alþjóðasamtaka og Sameinuðu þjóðanna komu upp um stórtæka fölsun á upprunavottorðum demanta frá Brasilíu og Gvæana, sem og demantaþvott á demöntum sem uppreisnarsveitir á Fílabeinsströndinni notuðu til að fjármagna vopnakaup sín. Kimberley-átakið hefur í þessum tilfellum og fleiri brugðist hlutverki sínu með því að taka ekki harðar á svindlinu. De Beers fer með ríflega helming af allri demantaverslun í heiminum, - alltént því sem er löglegt og uppgefið.
Mest lesið Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Innlent Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Erlent Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Innlent Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Innlent Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Innlent Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Innlent Aftur kjörin formaður þrátt fyrir fjárdráttinn sem felldi hana Erlent Fleiri fréttir Skæð hitabylgja velgir Evrópubúum undir uggum Aftur kjörin formaður þrátt fyrir fjárdráttinn sem felldi hana Skaut á slökkviliðsmenn úr launsátri Hefur í hótunum við New York vegna „kommúnistans“ Mamdani Krefjast svara um mögulegar frekari árásir Þúsundir Norðmanna fengu fyrir mistök tilkynningu um að hafa unnið milljónir Hitamet slegið á Spáni um helgina Sæta lögreglurannsókn vegna níðsöngva um ísraelska herinn Hættu leit eftir þrjá tíma að þeim sem féll útbyrðis úr Norrænu Íranir geti aftur byrjað að auðga úran eftir nokkra mánuði Metþátttaka í ólöglegri göngu: „Það er mikill hugur í fólki“ Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Hæstaréttardómarar fjarlægðu flein úr holdi Bandaríkjaforseta Lífstíðarfangelsi fyrir að myrða 14 ára dreng með samúræjasverði Finna fyrir fjarveru Bandaríkjanna á loftslagsfundi en sakna þeirra ekki Ungar konur særðust í skotárás í Nuuk Sá sem samdi Mission: Impossible lagið er látinn Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Dönsk stjórnvöld vilja tryggja fólki höfundarrétt að eigin persónu Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Twitter-morðinginn tekinn af lífi Stígur fram og segir Írani hafa löðrungað Bandaríkin „Áreiðanleg gögn“ sanni verulegt tjón á kjarnorkumannvirkjum Hvar er Khamenei? Ný ráðgjafarnefnd Kennedy hyggst endurskoða bólusetningar barna Stofna sérstakan dómstól vegna árásarglæpa Rússa Segist funda með ráðamönnum Íran í næstu viku Trump íhugar að láta Úkraínumenn fá fleiri Patriot-kerfi Kristrún missti af fundi með Selenskí Tók í spaðann á Trump: „Hann er nú heillandi, karlinn“ Sjá meira