Erlent

Stór lögregluaðgerð gegn mansali og vændi í Noregi

140 norskir lögreglumenn réðust í dag gegn skipulagðri vændisstarfsemi í Osló og Björgvin. 51s árs gamall Norðmaður er grunaður um að hafa stjórnað vændishringnum. Portkonurnar komu flestar frá Taílandi og frá Nígeríu.

"Okkur grunar að margar kvennanna hafi komið til Evrópu í gegnum Ítalíu. Þaðan hafi þær svo unnið sig upp til Noregs í gegnum þvera Evrópu. Lögreglan í Kaupmannahöfn tók einnig þátt í aðgerðunum, þar sem ýmis mál þar í landi tengjast þessum vændishring," sagði Iver Stensrud, hjá rannsóknarlögreglunni í Osló.

Yfir 20 nígerískar konur voru færðar á lögreglustöð í Osló í tengslum við rannsóknina en aðeins fáar þeirra vildu tjá sig við lögregluna.

Í Björgvin voru níu manns handteknir vegna gruns um kynlífssölu og mansal auk þess sem taílenskar vændiskonur voru fluttar á lögreglustöðina. Ekki fékkst uppgefið hversu margar þær voru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×