Öryggisráðið neitar að taka harða afstöðu í málefnum Vestur-Sahara 31. október 2006 22:00 Polisario hreyfingin í Vestur-Sahara hefur barist gegn yfrráðum Marokkóbúa á landssvæðinu Vestur-Sahara undanfarna áratugi. MYND/AP
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag að framlengja umboð friðargæslusveita Sameinuðu þjóðanna í Vestur-Sahara í hálft ár í viðbót en neitaði að samþykkja beiðni um að Marokkóbúar yrðu þvingaðir til að gæta betur að mannréttindum eftir að Frakkar mótmæltu henni.Ályktun öryggisráðsins var ekki skref í átt til lausnar í elstu landamæradeilu í Afríku heldur ávísun á sama ástandið í sex mánuði til viðbótar. Öryggisráðið segist hins vegar styðja lausn sem "stuðlar að sjálfsyfirráðum þjóðflokkanna í Vestur-Sahara." Danir óskuðu eftir því að öryggisráðið lýsti yfir áhyggjum sínum yfir mannréttindabrotum í Vestur-Sahara, þar sem Marokkóbúar hafa ráðið lögum og lofum síðustu 30 árin í óþökk innfæddra.Frakkar, sem halda verndarhendi yfir fyrrverandi nýlendu sinni, Marokkó, settu sig hins vegar upp á móti dönsku tillögunni, neituðu að styðja hana og fengu að lokum nokkrar aðrar ríkisstjórnir til liðs við sig, þar á meðal Bandaríkin. Franska sendinefndin neitar hins vegar að samþykkja þessa sögu sem fjölmiðlar hafa eftir öðrum diplómötum.Hvítir bílar friðargæslu Sameinuðu þjóðanna hafa í 15 ár gætt vopnahlés milli Marokkóbúa og innfæddra sem vilja sjá Marokkóbúa hafa sig á brott af landsvæðinu sem er um 266.000 ferkílómetrar. Um 340 þúsund manns búa í Vestur-Sahara.
Mest lesið Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Innlent Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent „Svona rosaleg vanlíðan getur ekki staðið endalaust“ Innlent Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Innlent Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Átta frambjóðendur VG berjast um þrjú sæti á lista í Reykjavík Innlent Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Erlent Bill og Hillary Clinton samþykkja að svara spurningum um Epstein Erlent Fleiri fréttir Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Bill og Hillary Clinton samþykkja að svara spurningum um Epstein Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Musk segir spænsk stjórnvöld hyggja á „þjóðarmorð“ Herða lög um brottvísanir: „Yfir á rauðu í von um að ljósið verði grænt“ Birtu nektarmyndir af ungum konum fyrir mistök Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur handtekinn í gær Efast um að öll Epstein-skjölin séu ekta „Njósnasjeik“ keypti Trump-félag og fékk flögur Yfirmaður flóttamannastofnunar segir af sér vegna Epstein-tengsla Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Leystu upp alla stjórnmálaflokka landsins Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Opna landamærin og fjöldi fluttur frá Gasa Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Sjá meira