Fílar eru gáfaðri en við héldum 31. október 2006 23:00 Fílkýrin Happy þreifaði endurtekið á hvítu x-i sem teiknað var á enni hennar. Hún er 34ra ára Asíufíll MYND/AP
Fílar stóðust nýlega mikilvægt gáfnapróf í Bronx-dýragarðinum í New York í Bandaríkjunum: þeir þekktu sjálfan sig í spegli. Það virðist smáatriði fyrir mannfólkið en fyrir utan okkur mennina eru það einungis simpansar, höfrungar - og núna fílar, sem átta sig á því að þeirra eigin spegilmynd er ekki annað dýr. Ein fílakýrin sem var sett fyrir framan spegilinn notaði spegilmynd sína til að þreifa á hvítu x-i sem hafði verið málað á ennið á henni. Fílarnir fóru allir beint að speglinum þegar þeim var sleppt út í stíuna þar sem hann var en hefðu þeir haldið að þarna væri ókunnur fíll á ferð, þá hefði verið eðlileg hegðun að fílarnir sneru upp á sig og forðuðust nýja fílinn. Vísindamennirnir segja að síðan hafi fílarnir tekið að rannsaka spegilinn, þefað mikið af honum án þess að reka upp nein hljóð, þó að þessir fílar séu ekki hljóðlátir að jafnaði. Þá hafi fílarnir hreyft sig fyrir framan spegilinn til þess að kanna hvernig spegilmyndin brygðist við. Ein kýrin hafi togað í vinstra eyrað á sér, önnur hafi teygt hálsinn í átt að speglinum og síðan dregið höfuðið til baka á víxl, allir fílarnir hafi einnig rekið ranana upp í munninn. Þetta er það sem kallast sjálfhverf hegðun fyrir framan spegil, líkt og þegar manneskjur líta í spegil til að laga útlitið eða stanga úr tönnum eða annað slíkt. Þessi hegðun er gjörólík því sem má sjá til dæmis þegar kettlingur hoppar endurtekið á spegil eða páfagaukur goggar í spegilmynd sína eins og til að flæma burt ókunnugan fugl. Þessi uppgötvun mun væntanlega leiða til þess að aðrir dýraatferlisfræðingar geri samsvarandi tilraunir á öðrum dýrategundum.
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Sjá meira