Erlent

Glasaungar til bjargar kóalakyninu

MYND/AP

Vísindamenn í Ástralíu kynntu í dag hóp af ungum kóalabjörnum sem eru afrakstur nýrrar glasafrjóvgunartækni. Kóalabirnir eru ekki í bráðri útrýmingarhættu en náttúruverndarstofnanir hafa tegundina þó á gátlista. 25 glasaungar hafa nú litið dagsins ljós, vísindamönnum og kóalaunnendum til mikillar gleði.

Kóalabirnir voru veiddir af miklum móð á fyrri hluta 20. aldarinnar og voru þeir útdauðir á sumum svæðum í Ástralíu. Þeir finnast hvergi utan Ástralíu, enda eru þeir, ásamt kengúrum og flatnefjum, eitt einkennisdýra Ástralíu.

Þeir eru einnig eitt af fáum spendýrum, fyrir utan manninn og nokkrar apategundir sem hefur fingraför. Fingraför kóalabjarna, sem vega að jafnaði 5-10 kíló og lifa í trjám, eru svo lík fingraförum á mennskum puttum að sérfræðing þarf til að greina á milli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×