Erlent

73ja kílóa þungur skötuselur

Skötuselur, meistaralega teiknaður af Jóni Baldri Hlíðberg.
Skötuselur, meistaralega teiknaður af Jóni Baldri Hlíðberg. MYND/©Jón Baldur Hlíðberg

Norsk hjón settu heldur betur í þann stóra þegar þau lönduðu 73ja kílóa þungum skötusel í Þrándheimsfirði í gær. Eftir því sem segir á fréttavefnum skip.is er þetta einn stærsti skötuselur sem sögur fara af. Fiskurinn var 165 sm að lengd. Lögreglan á staðnum var fengin til að vigta fiskinn svo enginn dirfðist að véfengja fiskisöguna.

 

Þess má geta að í bók Dr. Gunnars Jónssonar, Íslenskir fiskar, er skötuselur sagður geta orðið 200 sm langur og 40 kg að þyngd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×