Erlent

Spánverji laus úr haldi palestínskra mannræningja

Spænskur maður sem vinnur hjá hjálparstofnun á Gaza-ströndinni í Palestínu var látinn laus úr haldi mannræningja sem rændu honum úr bíl hans fyrr í dag. Manninum var rænt rétt við Khan Younis í suðurhluta Palestínu. Spánverjinn, Roberto Villa Sexto, sem er 32ja ára, hefur unnið við hjálparstarf í Palestínu í tvö ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×