Erlent

Nýtt fangelsi fyrir sex fanga á Pitcairn

Bresk fangelsismálayfirvöld tilkynntu í gær að fljótlega yrði hafist handa við fangelsisbyggingu á eyjunni Pitcairn í Kyrrahafinu. Fangelsið er sérstaklega byggt fyrir sex eyjaskeggja sem voru dæmdir til fangavistar fyrir kynferðisafbrot í vor. Þessir sex eyjaskeggjar eru 10% af heildaíbúafjölda eyjarinnar.

Pitcairn er bresk nýlenda en íbúarnir eru afkomendur uppreisnargjarnra áhafnarmeðlima af breska skipinu The Bounty, sem fjórar Hollywoodmyndir hafa gert ódauðlega. Með 60 íbúa er eyjan minnsta lögsagnarumdæmi í heimi.

Nýsjálenskir fangaverðir munu byggja fangelsið en bresk fangelsismálayfirvöld munu borga reikninginn sem hljóðar upp á 65 milljónir á ári.

Fjórir af sakamönnunum voru dæmdir til tveggja til sex ára fangavistar fyrir nauðgun. Hinir tveir hlutu vægari dóma fyrir kynferðislega áreitni. Þessir sex menn eru fjórðungur fullorðinna karlmanna á eyjunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×