Erlent

Varar við skiptingu Íraks og brotthvarfi Bandaríkjamanna

Skipting Íraks myndi leiða til þjóðernishreinsana og gríðarmikilla bardaga á milli trúarhópa, að mati sendiherra Sádi-Arabíu í Bandaríkjunum. Hann varar einnig Bandaríkjamenn við því að yfirgefa Írak án fyrirvara. "Fyrst Bandaríkjamenn komu óboðnir til Íraks, ættu þeir ekki að fara frá Írak óboðnir," sagði furstinn Turki al-Faisal á blaðamannafundi eftir ræðu sem hann hélt í Washington í dag.

Al-Faisal segir draumsýn um þrískiptingu Íraks milli ráðandi trúarhópa í landinu til þess fallið að kynda undir trúarlegu ofbeldi og þjóðernishreinsunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×