Erlent

Átök á ársafmæli óeirðanna

Kona á þrítugsaldri brenndist illa og þrír fengu vott af reykeitrun þegar hópur ungmenna kveikti í strætisvagni í hafnarborginni Marseilles í Frakklandi í gær. Þau ruddurst inn í vagninn, köstuðu þar frá sér flösku fullri af eldfimum vökva og kveiktu í. Konan fékk annars og þriðja stigs brunasár á höndum, fótum og andliti. Strætisvagninn eyðilagðist. Á föstudaginn var ár liðið frá miklum óeirðum í Frakklandi og var lögreglan því viðbragðsstöðu um helgina ef til átaka kæmi. Aðeins kom til smávægilegra átaka.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×