Erlent

Sænskur fjölmiðlamaður skotinn til bana í Mogadishu

Mannfjöldi var saman kominn í Mogadishu og Svíinn var skotinn í miðri þvögunni.
Mannfjöldi var saman kominn í Mogadishu og Svíinn var skotinn í miðri þvögunni. MYND/AP

Sænskur myndatökumaður var skotinn til bana í Mogadishu í Sómalíu í dag. Mörg þúsund manna flykktust á götur Mogadishu í morgun til að fagna friðarsamkomulag sem stríðandi fylkinga undirrituðu í gær. Ekki er ljóst hver skaut Svíann eða af hverju.

Talið er að það muni grafa undan trú á íslömsku andspyrnuhreyfinguna, sem náði borginni á sitt vald fyrir tveimur vikum, en hún sagðist myndu tryggja öryggi í höfuðborginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×