Sambandssinnar vilja endurtalningu 22. maí 2006 21:30 MYND/AP
Sambandssinnar í Svarfjallalandi krefjast þess að atkvæði verði talin að nýju í þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem Svartfellingar samþykktu með naumum meirihluta í gær að segja sig úr lögum við Serba. Kosningaeftirlitsmenn segja ekkert við framkvæmd kosninganna sem þeir geri athugasemd við. Munurinn í atkvæðagreiðslunni í gær gat tæpast verið minni. Samkvæmt bráðabirgðaúrslitum voru 55,4% þeirra sem tóku þátt fylgjandi því að Svartfjallaland sliti sambandinu við Serbíu. Kjörsókn var góð eða 86,3%. Svartfjallaland varð hluti af Júgóslavíu við stofnun hennar árið 1918 og hélt svo sambandinu við Serbíu eftir að Júgóslavíu liðaðist í sundur á sínum tíma. Á síðustu árum hefur hins vegar æ fleiri Svartfellingum þótt sambandið við Serbíu vera dragbítur á framfarir í landinu og hafa þeir krafist sjálfstæðis. Málið hefur þó skipað Svarfellingum í tvær fylkingar. Sambandssinnar segja að aðskilnaðurinn skaði efnahag- og stjórnmálaleg tengsl við Serba og kljúfa fjölskyldur. Í yfirlýsingu frá bandalagi sambandssinna segir að fara þurfi aftur yfir kjörseðla á öllum kjörstöðum og telja á ný. Auk þess telja þeir rétt að bera saman undirskrift fólks á kjörskrá við undirskrift á skilríkjum þar sem sambandssinnar óttast að brögð hafi verið í tafli. Einn kosningaeftirlitsmaður á vegum Evrópuþingsins sagði hins vegar í samtali við BBC í dag að hann hefði ekkert að athuga við framkvæmd atkvæðagreiðslunnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Innlent Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Innlent Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Fleiri fréttir Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Sjá meira