Sjálfsvígstilraun sett á svið 20. maí 2006 18:45
Fangar í Guantanamo fangabúðunum settu á svið sjálfsvígstilraun til að auðveldara yrði fyrir þá að ráðast á fangaverði í búðunum fyrir helgi. Bandarískum hermönnum tókst að brjóta árásina á bak aftur á skömmum tíma. Nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna lagði til í gær að búðunum yrði lokað en Bandaríkjamenn segja árásina sýna hve hættulegir fangarnir þar séu. Í skýrslu nefndarinnar í gær segir að fangabúðirnar séu ólöglegar og brjóti gegn alþjóðsamningi um bann við pyntingum. og því beri að loka þeim. Þar eru um 460 fangar og hafa þeir mátt dúsa þar síðastliðin fimm ár án dóms og laga. Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins sagði í gær að mörg atriði í skýrslunni væru röng og skýrslan ónákvæm á köflum. Nokkrum klukkustundum eftir að skýrslan var gerð opinber bárust fréttir af tilraun fanga í Guantanamo til uppreisnar á fimmtudaginn. Samkvæmt upplýsingum frá Bandaríkjaher settu fangarnir á svið sjálfsvígstilraun og þegar hermenn og fangaverðir reyndu að koma í veg fyrir að hún heppnaðist réðust aðrir fangar á þá með grófgerðum vopnum sem þeir höfðu sjálfir smíðað úr viftum, ljósabúnaði og öðrum sem hendi hefur verið næst. Þeir voru búnir að bera sápu og annað sleypiefni á gólfið í álmunni til að fangaverðirnir myndu fipast. Talsmaður hersins segir að auðveldlega hafi reynst að binda enda á þessa uppreisnartilraun og það á skömmum tíma. Sex fangar munu hafa særst í átökunum en ekki er vitað hvort hermenn eða fangaverði sakaði. Bandaríkjaher segir árásina fyrir helgi hafa verið þaulskipulagða. Nokkru fyrir árásina tóku tveir aðrir fangar of stóran lyfjaskammt en var bjargað. Á fjórða tug fanga hafa reynt að svipta sig lífi í fangabúðunum.
Erlent Fréttir Mest lesið Reyndi að stinga af frá 700 þúsund króna hótelreikningi Innlent Agnes Johansen er látin Innlent Brúin komin upp við Dugguvog Innlent Vilja fá að hafa áhrif á nærumhverfið og segja „ekki fleiri kassa“ Innlent Reyna sáttaleið eftir að aðalfundi MÍR var aftur hleypt upp Innlent Umfangsmikil leit þyrlusveitar og björgunarsveita að fiskibát í nótt Innlent Sagði „Diddy“ hafa hótað að láta hana hverfa Erlent Fjarlægja höfundarmerkingu einnar frægustu fréttaljósmyndar sögunnar Erlent Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Kanada hóta aðgerðum gegn Ísrael Erlent Suðureyjargöng náðu ekki í gegnum Lögþingið Erlent Fleiri fréttir Fjarlægja höfundarmerkingu einnar frægustu fréttaljósmyndar sögunnar Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Kanada hóta aðgerðum gegn Ísrael Sagði „Diddy“ hafa hótað að láta hana hverfa Suðureyjargöng náðu ekki í gegnum Lögþingið Borga fyrir skotfæri til Úkraínu með frystum eigum Rússa „Frábært“ símtal en án niðurstöðu Forsætisráðherra Spánar vill Ísrael í bann frá Eurovision Banna „óæskilega“ starfsemi Amnesty International í Rússlandi Stefnir í baráttu á milli frjálslyndis og íhalds í Póllandi Árangur í viðræðum Bretlands við Evrópusambandið Ísraelsk stjórnvöld segjast ætla að hleypa hjálpargögnum á Gasa Spænska ríkissjónvarpið vill að símakosningin verði yfirfarin Nicusor Dan nýr forseti Rúmeníu Trump sorgmæddur yfir greiningu Biden Joe Biden með krabbamein Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Rúmenar ganga aftur að kjörborðinu Leó orðinn páfi Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum Sjá meira