Þrýst á de Villepin að segja af sér 3. maí 2006 19:00
Þrýst er á franska forsætisráðherrann að segja af sér vegna ásakana um að hann hafi látið rannsókn á meintum mútugreiðslum beinast sérstaklega að samráðherra sínum. Dominique de Villepin forsætisráðherra kom út af vikulegum ráðherrafundi í morgun og vildi ekkert segja um málið. Það er reyndar allt hið neyðarlegasta. Fyrir tveimur árum kom fékk franskur dómari í hendurnar lista yfir menn sem áttu að hafa þegið mútugreiðslur sem settar hefðu verið á leynireikninga í Lúxemborg. Múturnar áttu að hafa verið greiddar í tengslum við sölu á frönskum freygátum til Tævans. Eitt nafnið á listanum var Nicolas Sarkozy. Hann er innanríkisráðherra og helsti keppinautur Villepins á hægri væng stjórnmálanna. Sarkozy fer ekki leynt með að hann ætlar sér forsetaembættið í kosningum á næsta ári. En eftir að listinn komst í hámæli var málið sett í rannsókn, og nú er Villepin sakaður um að hafa reynt að fá rannsakendur til að beina athygli sinni sérstaklega að keppinaut sínum Sarkozy. Franskur almenningur veit ekki lengur hverju hann á að trúa. Dagblaðið Le Monde birti í síðustu viku minnispunkta sem háttsettur rannsakandi á að hafa skrifað á fundi með forsætisráðherranum. Þar stendur meðal annars: "með Nicolas Sarkozy á heilanum". Síðar kom í ljós að listinn var falsaður og engar spurningar eru uppi um að nokkrar mútugreiðslur hafi átt sér stað. Spurningin sem eftir stendur, er hins vegar hvort franski forsætisráðherrann hafi reynt að beina rannsókninni sérstaklega að samráðherra sínum. De Villepin neitar þessum ásökkunum en Sarkozy segist vilja vita sannleikann. Og á meðan óvinsældir de Villepins aukast þá bíður Sarkozy óþreyjufullur eftir kosningum til forseta á næsta ári.
Mest lesið Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Innlent „Ég hafði ekki ímyndunaraflið í að sjá þetta fyrir mér“ Innlent Konur hafi þurft að afgreiða áttatíu vændiskaupendur á þremur dögum Innlent „Þurfum að búa við það á meðan að vera með þennan ofbeldissegg“ Innlent Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Innlent Þrjú dæmd fyrir að flytja inn BMW fullan af kókaíni Innlent Tekur ekki undir greiningu Heiðu Bjargar um konur í Samfylkingunni Innlent Gríðarleg andstaða við lagareldisdrög Hönnu Katrínar Innlent Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Erlent Fleiri fréttir Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sjá meira