Serbar kenna stríðsglæpadómstólnum um dauða Mílósevits 12. mars 2006 13:17
Niðurstöður úr krufningu á líki Mílósevitsberast í kvöld eða fyrramálið, og og þar með verður dánarorsökin vætanlega ljós. Serbneskur réttarlæknir verður viðstaddur krufninguna að kröfu Serba, sem telja Stríðsglæpadómstólinn bera ábyrgð á dauða hans. Líkið hefur verið flutt úr fangelsinu á réttarrannsóknarstofu í Hag, þar sem krufningin fer fram. Það er réttarlæknir frá Serbíu-Svartfjallalandi sem framkvæmir hana, en að kröfu serbneskra stjórnvalda verður annar réttarlæknir á þeirra vegum viðstaddur. Það var fangavörður sem fann líkið milli níu og tíu um morguninn, og hefur Mílósevits þá að líkindum verið látinn í nokkrar klukkustundir. Mílósevits, eins og fleiri fangar, var talinn í sjálfsmorðshættu, og því átti að fylgjast með honum og öðrum á hálftíma fresti. Rannsókn fer nú fram innan dómstólsins á aðdraganda dauða hans, en lögmaður hans segir nú að Mílósevits hafi lýst grunsendum sínum um að verið væri að eitra fyrir sér. Í morgun vísaði saksóknari í málinu þessu algerlega á bug - þetta væru eingöngu innistæðulausar sögusagnir. Hann tilkynnti jafnframt á blaðamannafundi að ekki væri búið að útiloka sjálfsmorð algjörlega, krufningin myndi skera úr um það. Stríðsglæpadómstóllinn hafnaði í síðasta mánuði beiðni hans um að fá að fara til Rússlands í læknismeðferð. Dómarar töldu hægt að meðhöndla sjúkdóm hans í Hollandi og voru ekki sannfærðir um að hann myndi snúa aftur fyrir lok réttarhaldanna. Nú saka ættingjar og stuðningsmenn hans dómstólinn um að bera ábyrgð á dauða hans. Fulltrúi dómstólsins fullyrti í gær að Mílósevits hefði fengið fullkomnustu læknisþjónustu sem völ var á. Dauði Mílósevits hefur vakið blendnar tilfinningar í Bosníu-Hersegóvínu. Bosníu-Serbar í borginni Pale, rétt utan við Sarajevo, söfnuðust saman í kirkjum og kveiktu á kertum fyrir Mílósevits. Á sama tíma á markaðstorginu í Sarajevo fögnuðu íbúar fregnunum af láti hans. Á þessu markaðstorgi voru óbreyttir borgarar stráfelldir í einu mesta blóðbaði í Sarajevo á tímum stríðsins.
Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Innlent Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Innlent Fleiri fréttir Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Sjá meira