Erlent

Öryggisráðið fjallar um mál Írana

Stjórn Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar ákvað á fundi sínum í dag að vísa máli Írana til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Hart var deilt á fundinum og gengu brigslyrðin á víxl. Bandaríkjamenn sögðu Írana hafa nægan efnivið í tíu kjarnorkusprengjur og við þeirri vá yrði öryggisráðið að bregðast. Íranar hótuðu í staðinn að draga úr olíuútflutningi til þeirra ríkja sem stæðu í vegi fyrir kjarnorkuáætlun þeirra. Reikna má með að fyrstu viðbrögð öryggisráðsins verði að beita Írana enn meiri diplómatískum þrýstingi. Sitji þeir eftir það enn við sinn keip verða þeir að líkindum beittir viðskiptaþvingunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×