Erlent

Aftökur í Írak

Ekkert lát er á ofbeldinu í Írak því að í morgun fundust í Bagdad lík átján manna sem teknir höfðu verið af lífi. Líkin voru um borð í lítilli rútu og af ummerkjum að dæma höfðu þeir verið bundnir á höndum og ýmist skotnir eða hengdir. Hverfið sem rútan fannst í er að mestu byggt súnníum en ekki er ljóst hvort mennirnir hafi verið úr hópi þeirra. Þá réðust byssumenn, dulbúnir sem lögregluþjónar, inn í höfuðstöðvar öryggisgæslufyrirtækis í Bagdad og rændu 50 starfsmönnum þess. Frá því að Gullna moskan í Samarra var sprengd á dögunum hefur spenna á milli sjía og súnnía aukist mjög og hafa fimm hundruð manns látið lífið í hjaðningarvígum síðustu daga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×