Erlent

11 ára stúlku nauðgað í Bretlandi

Bretar eru slegnir óhug eftir að ellefu ára stúlku var naugað inni á salerni í matvöruverslun í Lemington Spa í Warwickshire í Bretlandi. Stúlkan var með móður sinni í innkaupaleiðangri fyrir helgi og brá sér á klósettið en þar réðst á hana maður um tvítugt og nauðgaði henni.

Stúlkan gat gefið nokkuð góða lýsingu á manninum og hefur teikningum af honum verið dreift til almennings. Þeim sem getur veitt upplýsingar sem leiða til handtöku mannsins er heitið hátt í 3,5 milljónum króna. Lögreglan hefur þegar fengið nokkrar vísbendingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×