Erlent

Sex létust í sprengingum

Sex manns hið minnsta létu lífið þegar sprengingar skóku hof hindúa og lestarstöð í hinnu helgu borg Varanasi á Indlandi í dag. Fjörutíu til viðbótar særðust í sprengingunum þar af um tuttugu alvarlega.

Ekki liggur fyrir hvað olli sprengingunum en stutt er síðan múslimar og hindúar bárust á banaspjót í borginni Lucknow sem er þar stutt frá. Manmohan Singh, forsætisráðherra Indlands, hvatti til stillingar en öryggisgæsla hefur verið aukin í borgum víða á Indlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×