Erlent

Alþjóðabankinn styrkir Palestínustjórn

MYND/AP

Alþjóðabankinn samþykkti í dag að veita palestínsku heimastjórninni fjárstyrk að andvirði 2,8milljarða króna. Með þessu vill bankinn hlaupa undir bagga með heimastjórninni sem á í miklum fjárhagsvandræðum.

Ástæðan fyrir fjárhagsvanda palestínsku heimastjórnarinnar er sú að Ísraelar ákváðu að frysta allar skattgreiðslur til hennar vegna sigurs Hamas í þingkosningum í janúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×