Erlent

Sprenging í hofi á Indlandi

Að minnsta kosti 4 féllu og hátt í 20 særðust í minnst tveimur sprengingum í ferðamannabænum Varanasi á Norður-Indlandi í dag.

Önnur sprengingin varð í hofi Hindúa þar í borg en mikið fjölmenni var þar. Hin sprengingin var á lestarstöð.

Varanasi er ein helgasta borg Indlands í augum Hindúa. Engar fréttir hafa borist af því hvað olli sprengingunum eða hvort þær hafi reynst fleiri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×