Erlent

Fatah-liðar gengu á dyr

Þing heimastjórnar Palestínumanna kom saman til fundar í dag.
Þing heimastjórnar Palestínumanna kom saman til fundar í dag. MYND/AP

Þingmenn Fatah-hreyfingar Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, gengu útaf fyrsta þingfundi nýrrar heimastjórnar Palestínumanna í dag.

Hamas-samtökin hafa nú tekið völdin á þinginu og á þessu fyrsta fundi ætluðu Hamas-liðar að fella úr gildi lög sem veita forsetanum meira vald en hann hefður áður haft.

Þau lög voru sett skömmu áður en fyrri stjórn fór frá völdum. Þegar það lá fyrir gengu Fatah-liðar þegar á dyr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×