Erlent

Óháðrar rannsóknar krafist

MYND/Reuters

Danska stjórnarandstaðan krefst þess að fram fari óháð rannsókn á hvernig ríkisstjórnin tók á Múhameðsmyndamálinu svonefnda. Í viðtali við Politiken í dag segir Helle Thorning-Scmidt, leiðtogi jafnaðarmanna, að hafni ríkisstjórnin kröfunni sé augljóst að hún hafi eitthvað að fela. Greint var frá því í gær að Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra hefði í haust fengið bréf frá samtökum íslamskra ríkja vegna málsins en stungið því undir stól.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×