Handtökuskipunin dregin til baka 14. mars 2006 18:45
Serbneskur dómstóll hefur dregið til baka handtökuskipun á hendur Mirjönu Markovic, ekkju Slobodans Milosevic. Þar með hafa líkurnar á að forsetinn fyrrverandi verði grafinn í heimalandi sínu, aukist. Marko, sonur þeirra, kveðst fullviss um að faðir sinn hafi verið ráðinn af dögum. Mirjana Markovic er eftirlýst í Serbíu en hún er meðal annars ásökuð um fjársvik og samsæri um að myrða pólitískan andstæðing eiginmanns síns. Í dag ógilti hins vegar dómstóll í Belgrað handtökuskipun gegn Markovic og þar með snarjukust líkurnar á að Slobodan Milosevic yrði jarðsettur í heimalandi sínu. Í staðinn reiddu lögmenn hennar fram rúma eina milljón króna til tryggingar því að hún færi á fund dómara eftir rúma viku og svaraði spurningum hans. Ekki er þó sjálfgefið að Markovic gangi að þessum skilmálum því fari hún til Belgrað verður vegabréfið tekið af henni og þá gæti reynst erfitt fyrir hana að snúa aftur til Moskvu þar sem hún býr nú. Fréttaritari BBC í Belgrað segir serbneska ráðamenn afar grama yfir ákvörðun dómstólsins enda eru þeir mjög andsnúnir því að útför forsetans fyrrverandi fari fram í landinu. Marko Milosevic kom til Haag fyrr í dag til að ná í líkið af föður sínum. Á leiðinni til Hollands fullyrti Marko að þeir sem hefðu staðið í vegi fyrir að faðir sinn færi til lækninga í Rússlandi hefðu vísvitandi orðið honum að bana. Formlegra niðurstaðna krufningar er enn beðið en í gær upplýsti hollenskur eiturefnafræðingur að í líkama Milosevic hefðu fundist lyf sem óbeint hefðu valdið hjartaáfallinu sem dró hann til dauða. Fjórir rússneskir læknar eru á leiðinni til Haag til að gera sjálfstæða athugun á líkinu en rússnesk stjórnvöld hafa dregið hlutleysi lækna stríðsglæpadómstólsins í efa.
Erlent Fréttir Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Sjá meira