Öryggisráðið klofið vegna Hariri-málsins 2. nóvember 2006 22:35 Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. MYND/AP
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er klofið í afstöðu sinni til sérstaks dómstóls sem skal rétta í máli sakborninga fyrir morðið á Rafik Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons. Bandaríkin styðja tillöguna enda er ríkisstjórn Líbanons undir verndarvæng Bandaríkjanna. Rússar draga hins vegar taum Sýrlendinga, sem almannarómur sakar um að hafa skipulagt morðið. Bæði Rússar og Bandaríkjamenn hafa neitunarvald í öryggisráðinu og því mun hvorki ganga né reka meðan aðrir hvorir eru mótfallnir. Styrinn stendur um skipan dómaranna. Rússar vilja að öryggisráðið skipi dómarana, en hin fjögur ríkin sem hafa neitunarvald telja að það muni skekkja ráðninguna og gera hana pólitíska. Tillaga þeirra er að Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, skipi dómarana eftir nafnlausar ábendingar frá embættismönnum Sameinuðu þjóðanna. Annað þrætuepli er tímasetningin, hvenær dómstóllinn tekur til starfa. Emile Lahoud, forseti Líbanons, sem styður Sýrlendinga að málum, sem og Hisbollah og fleiri stjórnmálaöfl, vilja að óháð rannsókn Sameinuðu þjóðanna á morðinu verði lokið áður en dómstóllinn tekur til starfa. Líbanska ríkisstjórnin, með Fouad Siniora í broddi fylkingar, vilja hins vegar að dómstóllinn taki sem fyrst til starfa.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Sjá meira