Erlent

Kerry iðrast klaufalegs brandara

John Kerry er situr í öldungadeild bandaríska þingsins fyrir Massachusetts-fylki.
John Kerry er situr í öldungadeild bandaríska þingsins fyrir Massachusetts-fylki. MYND/AP

John Kerry, öldungardeildarþingmaður demókrata, sagðist í sjónvarpsviðtali iðrast þess að hafa sagt klaufalegan brandara um hermenn í Írak. Hann neitar hins vegar að biðja hermenn í Írak formlegrar afsökunar og segir skeytið hafi átt að beinast gegn republikönum og stjórnarháttum þeirra.

Orðin sem Kerry iðrast lét hann falla á fundi í háskóla í Kaliforníu. Hann hvatti nemendur til að leggja hart að sér til í náminu, annars enduðu þeir sem hermenn í Írak. Repúblikanar voru snöggir að snúa þessum orðum upp á móti honum og sögðu þetta lítilsvirðingu við hermenn Bandaríkjamanna í Írak; niðrandi orð um gáfnafar þeirra.

Þá hafa þeir notað þetta sem rök gegn demókrötum: þeim sé ekki treystandi fyrir herstjórn eða öryggi þjóðarinnar.

Kerry segir aftur á móti að hann hafi alls ekki ætlað að lítilsvirða hermenn í Írak, heldur þá sem hafa töglin og hagldirnar. Í stað þess að hóta ungmennunum að leti við bækurnar þýddi að "þá verðið þið föst í Írak", hafi hann viljað og ætlað að segja "þá endar með því að við verðum föst í Írak. Spurjið bara Bush forseta."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×