Erlent

Olmert styrkir stöðu ísraelsku stjórnarinnar

Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels.
Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels. MYND/AP

Ísraelska ríkisstjórnin samþykkti í dag tillögu Ehuds Olmerts, forsætisráðherra, um samstarf við hinn þjóðernissinnaða Yisrael Beitenu-flokk. Telja stjórnmálaskýrendur að það torveldi mögulegar friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna. Með tilkomu nýrra þingmanna eykst meirihluti ríkisstjórnarinnar um ellefu þingsæti.

Á sama tíma þráast Moshe Katsav, forseti Ísraels, við og neitar að víkja á meðan ákærur gegn honum um kynferðislegt áreiti og nauðgun verða rannsakaðar. Í yfirlýsingu forsetans í dag segist hann aðeins ætla að víkja verði hann ákærður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×