Fuglaflensan meiri ógn en alnæmi 8. mars 2006 12:59 Dýralæknir bólusetur önd í dýragarði í Frakklandi. MYND/AP
Banvænn stofn fuglaflensunnar er meiri ógn við mannkynið en alnæmi og allir aðrir smitsjúkdómar sem komið hafa upp. Þetta er mat sérfræðinga við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina. Á síðustu tveimur mánuðum hefur fuglaflensan breiðst til sautján nýrra landa, nú síðast til Póllands og Austurríkis, og mikill ótti hefur gripið um sig um gjörvalla heimsbyggðina. Þessi ótti er alls ekki ástæðulaus að mati Margaret Chan, sem leiðir starf Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar gegn útbreiðslu fuglaflensu. Í erindi sem hún hélt í Genf í gær, sagði hún sérfræðinga sammála um að fuglaflensan gæti átt eftir að reyna meira á þolmörk heimsbyggðarinnar, en nokkur annar faraldur í sögunni. Sem stendur væri ekki ástæða til að örvænta, en ef flensan stökkbreyttist og byrjaði að berast beint á milli manna, yrði að beita öllum tiltækum ráðum til að koma í veg fyrir gífurlegt mannfall og algjört efnahagslegt hrun. Chan segir að þar sem veiran berist með andrúmsloftinu, sé hún mun hættulegri en HIV, eða nokkur annar smitsjúkdómur sem hefur herjað á mannkynið undanfarna öld. Útbreiðsla fuglaflensunnar hefur nú þegar kostað 300 milljón bændur um allan heim allt að tíu milljörðum dollara, eða sem nemur rúmum sex hundruð milljörðum króna.
Erlent Fréttir Mest lesið Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Innlent Réðst að hópi drengja í sundlaug Innlent „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Innlent Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Erlent Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Innlent Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Erlent Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Erlent Fleiri fréttir Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Sjá meira