Mistök að ýja að kjarnavopnum Ísraela 11. desember 2006 23:11 Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels. MYND/AP
Talskona Ehuds Olmerts, forsætisráðherra Ísraels, sagði hann ekki hafa ætlað að segja að Ísraelar ættu kjarnavopn í sjónvarpsviðtali í kvöld. Hann taldi þar upp nafn Ísraels með öðrum kjarnorkuveldum, sem gengur þvert á þá stefnu sem ísraelsk stjórnvöld hafa fylgt undanfarin ár, að neita að gefa upp hvort ríkið eigi kjarnavopn eða ekki. Nokkrir andstæðingar ríkisstjórnar Olmerts kröfðust þess að hann segði af sér vegna þessara orða en nú eru orðin sögð mistök, Olmert hefði ekki ætlað eða viljað gefa neitt út um hvort Ísrael ætti, hefði nokkurn tíma átt, eða hreinlega langaði yfir höfuð í kjarnavopn. Spurningin um kjarnavopnabúr Ísraela barst aftur upp á yfirborðið í síðustu viku þegar verðandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Robert Gates, gaf í skyn á fundi með varnarmálanefnd öldungadeildar bandaríska þingsins að Ísraelar ættu kjarnavopn. Hann sagði að Íranar hefðu ríka ástæðu til að langa í kjarnavopn, þar sem nágrannar þeirra í öllum höfuðáttum ættu slík vopn: Pakistan í austri, Rússar í norðri, Ísraelar í vestri og floti Bandaríkjamanna á Persaflóa í suðri. Ísraelar eru almennt taldir eina kjarnorkuveldið í Miðausturlöndum og kjarnaoddabúr þeirra talið ríkulegt. Nánar um ummæli Olmerts úr fréttum fyrr í kvöld.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Innlent Fleiri fréttir Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sjá meira