Erlent

Interpol lýsir eftir frænda Saddams Husseins

Alþjóðalögreglan Interpol lýsir eftir og hefur gefið út viðvörun til aðildarríkja sinna eftir að Ayman Sabawai, frændi Saddams Husseins, fyrrverandi Íraksforseta, slapp úr fangelsi nærri Mósúl í Írak.

Sabawi afplánaði dóm vegna vörslu ólöglegra vopna og fyrir að búa til sprengjur fyrir hryðjuverkaárásir, og telur Interpol ógn geta stafað af honum af þeim sökum. Interpol gefur út svokallaða appelsínugula viðvörun vegna málsins sem oft er gert þegar borgarar eru hugsanlega í hættu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×