Tafir á flugi til og frá London 21. desember 2006 12:45
Nokkur hundruð flugum til og frá Heathrow hefur verið aflýst í morgun þar sem þykk þoka liggur yfir flugvellinum annan daginn í röð. Flugvél Icelandair er á leið til Heathrow en tafir verða á flugi til og frá London í dag. Einnig eru tafir á öðrum flugvöllum í London. Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst til og frá Heathrow í dag og fjöldi millilandavéla hefur ekki farið í loftið. Sky fréttastofan segir að öngþveiti sé á flugvellinum enda fjöldi farþega sem vildu komast heim um jólin eða burt í jólafrí strandaglópar á vellinum.Talsmaður flugvallarins segir að ekki sé búist við að þokunni létti næstu tvo sólarhringana. Á þessum árstíma fara um 190 þúsund farþegar á dag um flugvöllinn. Morgunvél Icelandair er á leiðinni til Heathrow þessa stundina en hún fór ekki í loftið fyrr en skömmu fyrir tíu. Eins og hálfs tíma seinkun er nú skráð á flugvél British Airways til Gatwick eftir hádegi. Guðjón Arngrímsson, talsmaður Icelandair, segir að morgunvél félagsins hefði aldrei farið í loftið ef ekki hefði legið fyrir staðfesting á að hún gæti lent. Hann sagði að einhverjar flugvélar væru að lenda og taka á loft þrátt fyrir svartaþokuna. Ef í harðbakkann slær eru varaflugvellir sem hægt væri að beina umferð til.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Sjá meira