Erlent

N-Kórea aftur að samningaborðinu um miðjan desember

Christopher Hill er aðalsamningamaður Bandaríkjamanna í viðræðunum við Norður-Kóreu.
Christopher Hill er aðalsamningamaður Bandaríkjamanna í viðræðunum við Norður-Kóreu. MYND/AP

Aðalsamningamaður Bandaríkjamanna í viðræðunum við Norður-Kóreu telur að viðræður við Norður-Kóreu við fimm önnur ríki vegna kjarnorkuvígbúnaðar landsins gætu hafist um miðjan desember en lagði jafnframt áherslu á að viðræðurnar yrðu vandlega undirbúnar. Norður-Kórea samþykkti í síðasta mánuði að snúa aftur að samningaborðinu eftir að hafa sniðgengið viðræðurnar í liðlega eitt ár.

Við samningaborðið sitja, auk Norður- og Suður-Kórea, Bandaríkin, Japan, Rússland og Kína, þar sem viðræðurnar munu fara fram. Þar verður rætt um afvopnun Norður-Kóreu og endalok kjarnorkuáætlunar landsins.

Kjarnorkutilraunir Norður-Kóreu þann 9. október síðastliðinn voru fordæmdar víða um heim og voru í framhaldinu lagðar viðskiptaþvinganir á landið að undirlagi Sameinuðu þjóðanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×