Erlent

Ciampino-flugvelli í Róm lokað vegna sprengjuhótunar

MYND/AP

Allri flugumferð var beint frá Ciampino-flugvelli í morgun eftir nafnlaust símtal þar sem tilkynnt var um sprengju um borð í vöruflutningavél, samkvæmt tilkynningu frá flugvallaryfirvöldum. Flestum flugvélum var beint til stærri flugvallarins sem oft er nefndur eftir Leonardo da Vinci.

Það eru aðallega vöruflutningavélar og vélar lággjaldaflugfélaga sem lenda á Ciampino-flugvellinum. Sprengjuleitarsérfræðingar kanna nú hvort einhver sprengiefni finnist á flugvellinum eða í vélum sem voru nýlentar þar þegar viðvörunin barst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×