Erlent

Írak og Sýrland taka upp stjórnmálasamband að nýju

Utanríkisráðherrar Íraks og Sýrlands.
Utanríkisráðherrar Íraks og Sýrlands. MYND/AP

Írak og Sýrland ætla að taka upp stjórnmálasamband á ný, nærri aldarfjórðungi eftir að því var slitið. Utanríkisráðherrar landanna skrifuðu undir yfirlýsingu þessa efnis í dag. Írösk stjórnvöld eru mjög ánægð með þessa þróun og telja að þetta sé skref í rétta átt til þess að draga úr flæði skæruliða yfir landamærin frá Sýrlandi.

Heimsókn utanríkisráðherra Sýrlands til Íraks er fyrsta opinbera heimsókn sýrlensks stjórnmálamanns til Íraks síðan Saddam Hussein var steypt af stóli árið 2003.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×