Erlent

Berlusconi ætlar ekki að stýra ríkisstjórn að nýju

Berlusconi veifar til
Berlusconi veifar til MYND/AP

Fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, Silvio Berlusconi, sagði í dag að hann myndi ekki leiða ríkisstjórn að nýju þó að flokkur hans komist til valda á ný, sem hann þó efast ekki um að muni gerast. Hann sagðist heldur ekki ætla að bjóða sig fram til forseta. Þetta birtist í litlu dagblaði á Ítalíu. Berlusconi fer fyrir rétt í dag í Mílanó vegna ákæru fyrir skattsvik og bókhaldsfölsun.

Það er lítið ítalskt dagblað, Libero, sem hefur þetta eftir vinum forsætisráðherrans fyrrverandi, en hann á að hafa látið þessi orð falla í matarboði með nánum vinum.

Berlusconi tapaði forsætisráðherrastólnum til Romanos Prodis og ólífubandalags hans í apríl síðastliðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×